Reglur um val á skotíþróttamönnum ársins hjá Skotfélagi Akureyrar 2018
- Eingöngu félagsmenn með keppnisrétt hjá Skotfélagi Akureyrar eru gjaldgengir til skotmanna ársins hjá Skotfélagi Akureyrar.
- Skotmenn ársins verði fjórir (4), í karlaflokki, kvennaflokki, unglingar drengir og unglingar stúlkur.
- Notuð er reikniregla sem tekur tillit til styrks móta og sætis keppenda á mótum.
- Vægi móta eru í eftirfarandi röð með margföldunarstuðli:
A: Íslandsmót, 5
B: Landsmót, 4
C: Akureyrarmeistaramót, 3
D: Opin STÍ mót, 3
E: Innanfélagsmót, 1
F: Önnur opin mót hjá öðrum félögum, 0,8 - Stig fyrir sæti eru:
1. sæti 10 stig
2. sæti 8 stig
3. sæti 6 stig
4. sæti 5 stig
5. sæti 4 stig
6. sæti 3 stig
7. sæti 2 stig
8. sæti og neðar 1 stig - Viðbótarstig eru veitt fyrir Íslandsmet (10 stig) og bættan flokkaárangur (5 stig).
Skjal til að reikna út stöðu skotmanns til stiga í Skotmanni ársins: Skotmaður ársins V1.00