Móttaka hópa/óvissuferðir

 

Að sumarlagi fara hópamóttökur fram á haglavelli félagsinns á glérárdal. Þeir sem hafa áhuga á að skipuleggja heimsókn til okkar með hóp (óvissuferð/ gæsun/ steggjun/ vinnustaða ferð/ annað), geta sent fyrirspurn á netfangið skotak@skotak.is.

Félagið er með útiaðstöðu á Glerárdal, þar er 200 m riffilbraut og 4 haglavellir.

Kostnaður er  30.000 fyrir hópa upp að 10. manns og svo 3.000 kr. per. mann eftir það. 

Innifalið í heimsók á svæðið eru 5.stk haglaskot á mann og svo er hægt að fá aukaskot á kr.100 stk.

Þeir sem koma á svæðið eru þó beðnir um að hafa í huga að áfengisneysla er ekki leyfð fyrir komuna eða á meðan á skotfiminni stendur.

Á veturnar fara hópamóttökur fram í inniaðstöðu okkar í íþróttahöll. Þeir sem hafa áhuga á að skipuleggja heimsókn til okkar með hóp (óvissuferð/ gæsun/ steggjun/ vinnustaða ferð/ annað), geta sent fyrirspurn á netfangið skotak@skotak.is.

Inniaðstaða félagsins er í kjallara Íþróttahallarinnar á Akureyri, þar er hægt að skjóta með loftskammbyssu og loftriffli á 10 m braut.